Fyrri mynd
Næsta mynd
Ok
Velkomin á Hringsjá. Við notum vefkökur (e. cookies) til þess að bæta upplifun þína og greina umferð um síðuna.
Með því að nota vefsíðuna samþykkir þú notkun á vefkökum og skilmála okkar.
Aldrei gera illt - svo aðrir sjái.
Mark Twain
Neytendasamtökin munu framvegis sjá um aðstoð við leigjendur.
Neytendasamtökin munu framvegis sjá um aðstoð við leigjendur.
Neytendamál  27. ágúst 2011

Velferðarráðuneytið gerir þjónustusamning við Neytendasamtökin

Munu sjá um aðstoð við leigjendur

Guðbjartur Hannesson velferðarráðherra hefur nú undirritað þjónustusamning við Neytendasamtökin um leiðbeiningarþjónustu við leigjendur. Frá því að Leigjendasamtökin hættu starfsemi sinni hafa Neytendasamtökin í vaxandi mæli sinnt aðstoð við leigjendur og svarað fyrirspurnum um leigumál eftir bestu getu.

Samkvæmt samningnum mun þjónustan felast í því að Neytendasamtökin veiti leigjendum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt sinn og skyldur samkvæmt húsaleigulögum. Gert er ráð fyrir að samtökin byggi upp upplýsingavef fyrir leigjendur á heimasíðu sinni auk þess sem þau muni veita leigjendum viðtal í gegnum síma eða á skrifstofu sinni.

Jafnframt muni leigjendur eiga kost á lögfræðilegri ráðgjöf að því er varðar rétt leigjenda og skyldur. Þá er í samningnum mælt fyrir um að Neytendasamtökin taki að sér milligöngu við úrlausn ágreinings milli leigjenda og leigusala ásamt því að aðstoða leigjendur við að leggja ágreining fyrir kærunefnd húsamála ef þörf krefur.

Með samkomulagi velferðarráðuneytisins og Neytendasamtakanna mun þjónusta við leigjendur eflast til muna. Þjónustusamningurinn sem er liður í stefnumótun ráðuneytisins um að efla leigumarkað verður til mikilla hagsbóta fyrir leigjendur auk þess sem samstarf við Neytendasamtökin mun auðvelda ráðuneytinu að liðsinna leigjendum og styrkja stöðu þeirra. Á vegum velferðarráðuneytisins er nú unnið að endurskoðun húsaleigulaga.

Leigjendur geta hringt í síma 5451200 og fengið leiðbeiningar og aðstoð á  mánudögum, þriðjudögum og fimmtudögum kl. 12:30 – 14:00. Einnig geta þeir sent fyrirspurn í tölvupósti á netfangið ns@ns.is. Þá er skrifstofa samtakanna opin kl. 9:00-15:00 alla virka daga að Hverfisgötu 105, Reykjavík.

 - Fréttatilkynning -

Velferðarráðuneytið

Neytendasamtökin


Lykilorð:
Senda grein
Prenta
Þessi síða hefur verið skoðuð 100.920 sinnum.